23.11.1967
Efri deild: 19. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (529)
33. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur komið saman og fjallað um frv. til l. um viðauka við l. nr. 4 31. marz 1967, um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins.
Við afgreiðslu málsins lágu fyrir nánari upplýsingar um þörfina fyrir þessa 12,5 millj. kr. fjárveitingu, sem veitt var að beiðni útvegsmanna til að bæta veiðarfæratjón vegna óveðurs, sem gekk yfir landið 17.–28. marz s.l. Við bréfi, sem LÍÚ sendi út, bárust svör frá 268 bátum, sem töldust hafa orðið fyrir mjög alvarlegu veiðarfæratjóni, og nam tjónið að mati LÍÚ allt að 30 millj. kr.
Það varð einnig niðurstaðan á síðustu vetrarvertíð, að aflabrestur var mikill, og varð heildarafli aðeins um 175 þús. tonn, sem var verulega minna heldur en ráð hafði verið fyrir gert. Það þótti því sanngjörn leið að leita til hæstv. ríkisstjórnar um aðstoð og var veitt umrædd fjárhæð, 12,5 millj. kr.
Nm. kynntu sér þessi gögn. N. var sammála um afgreiðslu frv. Allir nm. voru viðstaddir afgreiðslu málsins nema Ólafur Jóhannesson, og nál, liggur hér fyrir.