25.01.1968
Efri deild: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

99. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Eins og ég gat um í framsöguorðum mínum fyrir því frv., sem næst er á undan á dagskránni, liggja nákvæmlega sömu rök til flutnings þessa frv. eins og frv. um verkamannabústaði, og læt ég mér nægja að vísa til þess, sem ég sagði um það frv.

Ég legg enn fremur til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.