27.11.1967
Efri deild: 23. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

46. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég vænti þess, að það megi treysta því, sem hæstv. landbrh. sagði, að í þeim frv., sem síðar kunna að koma og eru í sambandi við breytingu á gengi íslenzku krónunnar, verði þær ráðstafanir gerðar, að hlutur bænda verði ekki fyrir borð borinn, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, og vil ég þakka honum fyrir þessa yfirlýsingu og vænti þess, að við hana verði staðið.