17.04.1969
Neðri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)

160. mál, umboðsþóknun og gengismunur gjaldeyrisbankanna

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv. þetta til athugunar. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 458, mælir n. með því, að frv. verði samþ., en einn nm., hv. 4. þm. Austf., var fjarstaddur afgreiðslu málsins. N. sendi málið til umsagnar gjaldeyrisbankanna, þ.e.a.s. Landsbanka Íslands og Útvegsbanka Íslands, og eru svör þeirra prentuð sem fskj. með nál.