05.12.1968
Efri deild: 22. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)

97. mál, brunavarnir og brunamál

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, var flutt síðla á síðasta þingi og hlaut ekki endanlega afgreiðslu hv. Alþ., mun hafa verið afgreitt úr þessari hv. d., en hlaut ekki afgreiðslu hv. Nd.

Með bréfi dags. 28. október 1966 fól félmrn. Bárði Daníelssyni yfirumsjónarmanni brunavarna að athuga og gera till. um, með hvaða hætti skipulag og starfsemi Brunavarnaeftirlits ríkisins skyldi háttað í framtíðinni, þannig að það gæti verið sem bezt og gegnt sem bezt meginhlutverkum sínum, að leiðbeina sveitarstjórnum um allar verklegar og skipulegar framkvæmdir til brunavarna og hafa yfirumsjón með ákvæðum l. um brunavarnir og brunamál og að þeim ákvæðum verði hlýtt. Með bréfi dags. 29. desember sama ár fól rn. Páli Líndal borgarlögmanni að vinna að framangreindu verkefni með yfirumsjónarmanni brunavarna, og skyldu þeir skila rn. svo fljótt sem kostur væri á umbeðnum till. í frv.-formi.

Frv. þetta til l. um brunavarnir og brunamál, sem hér er nú lagt fram, er eins og framangreindir menn gengu frá því og afhentu rn. í des. 1967. Skipulagðar brunavarnir eiga sér ekki langa sögu hér á landi. Strjálbýlið gerði ókleift að koma slíku við. Þegar eldur kom upp, urðu menn að treysta á eigið atfylgi og nágranna sinna til slökkvistarfa. Fyrstu opinberar reglur, sem settar voru á Íslandi um brunavarnir eða brunamál, voru settar fyrir rúmri 11/2 öld síðan, eða 1. apríl 1807. En þann dag gaf stiftamtmaður út augl. um varnir gegn brunahættu í Reykjavík. Vísir að slökkviliði tók að þróast í Reykjavík á öðrum þriðjungi 19. aldar, en árið 1875 eru sett sérstök lög um brunamálefni í Reykjavík, þar sem nákvæmlega er kveðið á um meðferð brunamála. Þau lög héldu gildi sínu unz sett voru núgildandi lög um brunavarnir í Reykjavík, nr. 28 1945. Heildarlög um brunamálefni utan Reykjavíkur voru fyrst sett með l. nr. 85 frá 1907, og var svo mælt fyrir í 39. gr., að l. giltu fyrir kaupstaði utan Reykjavíkur, verzlunarstaði og aðra þá staði og húseignir, sem eigi féllu undir lög frá 20. október 1905, um vátryggingu sveitabæja og annarra húsa í sveitum utan kauptúna. Jafnhliða þessum l. giltu sérstök lög um slökkvilið á Ísafirði frá 1883, Seyðisfirði frá 1901, Akureyri frá 1905 og Hafnarfirði frá 1909. Öll þessi löggjöf var afnumin með núgildandi lögum, nr. 37 frá 1948, en samkv. þeim l. var síðan sett reglugerð nr. 167 1949. Með þessari löggjöf um brunavarnir og brunamál var vissulega stigið spor í rétta átt, því að þar er að finna allýtarleg ákvæði um skipulag brunavarnamála, um slökkvilið, meðferð á ljósum og eldfimum efnum, frágang eldfæra og eldfæraeftirlit, skyldur borgaranna, þegar eldsvoða bar að höndum, um brunavarnir og um gerð húsa með tilliti til brunavarna o.fl. Öllum er kunnugt um hin tíðu og miklu brunatjón, sem hér á landi ekki aðeins leiða af sér beint eða óbeint tjón á lausafé og fasteignum, heldur einnig þungar eftirstöðvar af völdum eldsvoða.

Í febrúar 1958 var samþ. þál. á Alþ. um varnir gegn brunatjóni, og var þar skorað á ríkisstj. að láta þegar fara fram ýtarlega rannsókn hinna færustu manna á orsökum hinna tíðu eldsvoða, sem valdið hafa miklu tjóni á atvinnutækjum þjóðarinnar, og gera hverjar þær ráðstafanir, sem þurfa þykir til að draga úr eldhættu í atvinnufyrirtækjum. Í september á því ári skipaði félmrh. 6 menn undir forsæti þáv. yfirumsjónarmanns brunavarna, Geirs Zoëga, til að annast rannsókn þá og gera þær till., sem um var fjallað í verkefni þál. Nál. barst í júní 1959. Nm. voru þá sammála um, að helztu orsakir eldsvoða í atvinnutækjum væru slæm umgengni og vanræksla á umbúnaði tækja. Í öðru lagi lélegur og ófullkominn útbúnaður og frágangur rafmagnstækja og raflagna. Í þriðja lagi ófullkominn og trassafenginn frágangur olíukynditækja og í fjórða lagi byggingargallar frá tæknilegu sjónarmiði eldvarna í uppsetningu þurrkofna og hitunartækja, véla o.fl. Og í fimmta lagi bráðabirgðatæki til hitunar og lýsingar, aðallega í sambandi við nýbyggingar, frá þeim væri ekki nógu tryggilega gengið. Í sambandi við væntanlegar umbætur á hinu mikla ófremdarástandi í þessum málum lögðu nm. m.a. til, að hinar þrjár stofnanir, sem hafa eftirlit með öryggisútbúnaði húsa og véla, þ.e. Brunavarnaeftirlitið, Rafmagnseftirlitið og Öryggiseftirlitið, herði mjög allt eftirlit og gangi ríkt eftir, að fyrirmælum laga og reglugerða um frágang fyrrgreindra tækja og húsa og um allan öryggisútbúnað sé fyllilega hlýtt, einnig að gerðar verði nauðsynlegar laga- og reglugerðarbreytingar til að tryggja raunhæfa framkvæmd eftirlitsins, enn fremur að tekin verði upp markviss almenn fræðslustarfsemi um þessi mál og loks, að reynt verði, eftir því sem frekast er unnt, að upplýsa orsakir eldsvoða, og séu niðurstöður réttarrannsókna teknar fram í skjölum málsins. Þá gerði n. till. varðandi verksvið og stjórn Brunavarnaeftirlits ríkisins og gerði að sjálfsögðu ráð fyrir lagabreytingu eða setningu nýrra laga í því sambandi.

Eins og vikið er að í aths. þessa frv., hafa brunatjón á Íslandi numið geigvænlegum upphæðum hin síðari ár, og það, sem verra er, að það er hér tvöfalt eða þrefalt meira en í nágrannalöndum okkar, a.m.k. miðað við 5–6 síðustu árin. Þó er það verst, að auðvelt mun að sýna fram á, að þessi miklu brunatjón stafa að verulegu leyti af skorti á eftirliti og fræðslu á sviði brunamála. Brunavarnaeftirlit ríkisins þarf því að efla, svo að það geti annað verkefni sínu á raunhæfan hátt, svo sem ráð er fyrir gert í þessu frv. Fræðslustarfsemi og kynningar á brunamálum og brunavörnum, hvort sem er í skólum, dagblöðum, útvarpi eða sjónvarpi, þarf og að stórefla. Einnig að efna til námskeiða fyrir slökkviliðsmenn utan af landi, enda er ráð fyrir þessu gert í þessu frv., sem hér er til umr. Eins og frv. ber með sér, er hér fyrst og fremst um heildarlög að ræða, en hins vegar ætlazt til, að kveðið verði á nánar um ýmis framkvæmdaratriði og reglur um tæknimálefni í sérstökum reglugerðum, sem settar verði síðar. Höfuðbreytingin frá gildandi lögum, sem samþykkt þessa frv. hefði í för með sér, er sú, að kostnaðurinn, sem til þessa hefur verið borinn uppi af Brunabótafélagi Íslands einu, á starfsemi Brunavarnaeftirlits ríkisins mun nú borinn uppi af öllum starfandi tryggingarfélögum, ef frv. nær óbreytt fram að ganga.

Ég tel ekki þörf á því, herra forseti, að hafa um frv. fleiri orð nema frekara tilefni gefist til, en legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.