28.11.1968
Neðri deild: 20. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (132)
87. mál, námslán og námsstyrkir
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Hv. þm. vitnaði einnig í grein Alþýðublaðsins um þetta mál fyrir nokkrum dögum. Ég hef hana ekki við hendina, en ég tók svo eftir, að hv. fyrri ræðumaður hafi sagt, að í greininni hafi verið svo kveðið að orði, að unnið væri að því að rétta hag íslenzkra námsmanna erlendis, eftir því sem kostur væri, eða eitthvað því um líkt. Þannig heyrðist mér hann lesa, og það er þetta, sem ríkisstj. hefur verið að gera og mun leggja fram till. fyrir hið háa Alþ. um. Á öðrum ráðstöfunum en þessum er ekki von í þessu sambandi.
Þann misskilning vildi ég hins vegar leiðrétta hjá hv. síðasta ræðumanni, að hin nýju verkefni, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, rýri hag hinna, sem fyrir eru. Ég tók það einmitt fram, að þessi ákvörðun um stækkun, fjölgun á aðild að sjóðnum, var tekin í sumar, áður en fjárlagafrv. var samið, og það var tekið tillit til þessarar stækkunar sjóðsins, þegar fjárlagafrv. var samið. Útgjaldaaukning vegna fjölgunarinnar er inni í fjárlagatölunum, og þess vegna þurfti ekki að taka tillit til þess aftur, þegar leiðrétting var gerð vegna gengisbreytingarinnar og afleiðinga hennar.
Að síðustu vildi ég svo segja, að síðasti ræðumaður var annars hógvær í sínum ummælum. Þó sagði hann hluti, sem valda því, að ég neita mér ekki um að segja, að sú var tíðin, að ég var í stjórn með Framsfl. Ég var menntmrh., og Framsfl. hafði fjmrh., og ég verð að segja það, að ég minnist með lítilli ánægju viðskipta minna við þann fjmrh. um málefni námsmanna.