29.04.1969
Neðri deild: 83. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)
216. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1969
Forseti (SB):
Forseti vill koma þeim upplýsingum á framfæri til hv. þdm., að nauðsynlegt er að halda þrjá fundi í hv. þd. nú, strax og lokið er umr. um þetta mál, vegna frv. frá hv. sjútvn. þessarar d., sem þarf að verða að lögum og ganga í gegnum allar umr. í báðum d. í dag og á morgun. Þess vegna vildi ég mælast til þess, ef hægt væri, að hv. þm. styttu mál sitt um það mál, sem hér liggur fyrir.