16.05.1969
Efri deild: 96. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1504)

216. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1969

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Um grg. fyrir efni þessa frv. vísa ég til frv. sjálfs og framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins. Fjhn. hefur haft málið til meðferðar, og eins og nál. á þskj. 758 ber með sér, er n. sammála um það að mæla með frv., en 3 hv. nm. hafa skrifað undir það með fyrirvara, sem ég skil þannig, að þeir áskilji sér þar með rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. En þar sem ég hef ekki orðið var við, að þær hafi enn komið fram, geri ég þær að sjálfsögðu ekki að umtalsefni.

Herra forseti. Samkv. þessu leggur fjhn. til, að þetta frv. verði samþ.