12.05.1969
Efri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1975)

120. mál, áfengislög

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Fyrir hönd allshn. vil ég lýsa hér smávægilegri, en þó nauðsynlegri brtt. við 29. gr. frv., en þar segir, að lög þessi öðlist gildi 1. maí 1969. En þetta er nauðsynlegt að leiðrétta, því að það hæfir ekki að láta lögin gilda aftur fyrir sig og reyndar óframkvæmanlegt. Og því er hér lagt til, að í staðinn fyrir 1. maí komi 1. júní, en þar sem þessi till. er skrifleg og of seint fram borin, þá vænti ég þess, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir henni.