12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

215. mál, sala landspildna úr landi Vífilstaða

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt af fimm þm. úr Reykjaneskjördæmi. Það hefur hlotið athugun í heilbr.- og félmn. og var sent til umsagnar stjórnar ríkisspítalanna, sem út af fyrir sig getur fallizt á frv., eins og það er, með þeim ábendingum, sem fram koma í umsögn hennar. N. hefur einróma mælt með, að frv. verði samþ.