16.04.1969
Sameinað þing: 40. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2171 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forseti (BF):

Út af fsp. hv. 1. þm. Norðurl. v. vill forseti aðeins segja það, að ekki er langt síðan forsetar þingsins hafa gert formönnum þingflokkanna grein fyrir, hvernig þetta mál stendur. Það er ekki staður né stund til þess að hefja umr. um þetta mál hér að sinni, en ég leyfi mér að vísa hv. þm., varðandi þetta mál, til formanns þingflokks hans, sem veit nákvæmlega, hvernig málið stendur.

Ég get svo bætt því við, að ég skal hlutast til um það við meðforseta mína, að gerð verði opinberlega ítarleg grein fyrir þessu máli.