04.11.1968
Neðri deild: 9. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2188 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík. 2. nóv. 1968.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi. Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Friðjón Þórðarson,

4. þm. Vesturl.“

Kjörbréf Ásgeirs Péturssonar hefur áður verið rann

sakað, og býð ég hv. þm. velkominn til setu í hv. þd.