06.11.1968
Sameinað þing: 8. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 5. nóv. 1968.

Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Tómas Karlsson ritstjórnarfulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Þannig stendur á, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík hefur þegar tekið sæti á þingi. Kjörbréf Tómasar Karlssonar liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]