19.11.1968
Sameinað þing: 12. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (2240)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 14. nóv. 1968.

Þar sem ég vegna sérstakra skyldustarfa mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður I-listans í Reykjavík, Haraldur Henrýsson lögfræðingur, sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Hannibal Valdimarsson,

9. þm. Reykv.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Haralds Henrýssonar liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]