11.12.1968
Sameinað þing: 19. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 10. des. 1968.

Ólafur Björnsson, 12. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna sérstakra anna 1. varamanns Sjálfstfl. í Reykjavík, Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra, taki 2. varamaður, Þorsteinn Gíslason skipstjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Þorsteins Gíslasonar skipstjóra hefur áður verið rannsakað, og hann hefur áður setið hér á þingi. Hann tekur nú sæti sem 12. þm. Reykv. í forföllum Ólafs Björnssonar, og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa.