07.02.1969
Sameinað þing: 27. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (2253)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Jónasar Jónssonar, 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., en eins og forseti hefur lýst, er óskað eftir því, að hann taki sæti á Alþingi í veikindaforföllum Gísla Guðmundssonar.

Kjörbréfanefnd hefur ekkert fundið athugavert við þetta kjörbréf og leggur hún því til, að kosning Jónasar Jónssonar verði tekin gild og kjörbréf hans sé samþ.