10.03.1969
Neðri deild: 62. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2262)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BGr):

Borizt hefur eftirfarandi bréf:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að fyrsti varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Friðjón Þórðarson,

4. þm. Vesturl.“