12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 12. maí 1969.

Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður landsk. þm. Alþb., Ragnar Arnalds lögfræðingur, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Jónas Árnason,

4. landsk. þm.

Kjörbréf Ragnars Arnalds hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.