13.05.1969
Neðri deild: 94. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 13. maí 1969.

Þar sem Bragi Sigurjónsson, 9. landsk. þm., er farinn til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér samkv. beiðni hans að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Gylfi Þ. Gíslason,

formaður þingflokks Alþfl.

Kjörbréf Unnars Stefánssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.