14.05.1969
Sameinað þing: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (2275)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 13. maí 1969.

Ingólfur Jónsson, 1. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ragnar Jónsson skrifstofustjóri hefur áður átt sæti á Alþ. sem þm. fyrir Sjálfstfl. og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Tekur hann nú sæti á þinginu sem 1. þm. Sunnl.