17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

22. mál, stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Frsm. (Sigurður Ingimundarson):

Herra forseti. S.l. vor voru gerðar breytingar á stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem miðuðu að því að koma á kerfi yfirdráttarréttinda til viðbótar hinum almennu yfirdráttarlánum. Ríkisstj. stóð að þessum till. á sínum tíma, með fyrirvara um samþykki Alþ., og er frv. þetta borið fram til staðfestingar á aðild Íslands. Fjhn. hefur haft málið til athugunar og leggur shlj. til, að það verði samþ.