17.05.1969
Sameinað þing: 54. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2212 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar alþm. að þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans og hlýleg orð í okkar garð. Ég vil einnig, og ég veit, að ég tala þar í nafni okkar allra, þakka hæstv. forseta fyrir skörulega og réttláta fundarstjórn og góða samvinnu um þinghaldið. Ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla, gleðilegs sumars, og ég vona, að við sjáum hann hér heilan á húfi, þegar við komum saman aftur í haust. Ég vil biðja þingheim að gera þessi orð að sínum með því að rísa á fætur. — [Þingmenn risu úr sætum.]