13.05.1969
Neðri deild: 94. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í C-deild Alþingistíðinda. (2820)
251. mál, Kvennaskólinn í Reykjavík
Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson) :
Herra forseti. Ég beindi áðan þeirri fsp. til hæstv. menntmrh., hvort það væri ætlun stjórnarflokkanna að stöðva menntaskólafrv. í Ed., og þau svör, sem hæstv. ráðh. gaf, voru engan veginn fullnægjandi. Hann sagði, að ríkisstj. hefði ekki farið fram á það við menntmn. Ed., að frv. yrði stöðvað. En ég held, að hæstv. ráðh. geti sparað sér að vera með slík ólíkindalæti. Ég veit ósköp vel um það, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki formlega gert eitt eða neitt í því sambandi. En hitt veit ég, að menntmn. Ed. hefur ekki fjallað um málið, og hæstv. ríkisstj. er vön því, þegar mál eru sent hún hefur áhuga á og vill að verði afgreidd hér á þingi, að fylgjast með gangi þeirra. Hæstv. ríkisstj. hefur kunnað ákaflega vel að koma slíkum málum í gegnum nefndir á furðustuttum tíma. Ef hæstv. menntmrh. hefur áhuga á því, að þetta mál nái fram að ganga, þá hlýtur hann að beita sér fyrir því, að menntmn. Ed. fjalli um málið. Ef hins vegar hæstv. ráðh. kemur hér og þykist ekkert um málið vita, ypptir öxlum og segir: Þetta er á valdi n., — þá sýnir það aðeins það, að hann hefur engan raunverulegan áhuga á málinu lengur. Vil ég biðja hv. alþm. að bera það saman við það, sem hæstv. ráðh. sagði, þegar hann mælti fyrir þessu máli hér í upphafi.