30.04.1969
Sameinað þing: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í D-deild Alþingistíðinda. (3032)

173. mál, Listasafn Íslands

Frsm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur fjallað um till. þessa til þál. um Listasafn Íslands. Till. lýtur að því, að skorað verði á hæstv. menntmrh., að hann beiti sér fyrir því, að sem fyrst verði teknar ákvarðanir um lóð til handa Listasafni Íslands og byggingarundirbúningi hraðað. Nm. urðu sammála um að mæla með samþykkt till., en tveir voru fjarstaddir, eins og greinir í nál.