17.05.1969
Sameinað þing: 53. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í D-deild Alþingistíðinda. (3102)

48. mál, hagnýting jarðhita til ræktunar

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Þessi þáltill. um hagnýtingu jarðhita til ræktunar hefur legið fyrir hv. allshn., og hún var send til umsagnar 5 aðilum. Svör bárust frá þeim öllum og mælt var með því, að þessi þáltill. yrði samþ. Allshn. mælir einróma með samþykkt hennar.