11.12.1968
Sameinað þing: 19. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í D-deild Alþingistíðinda. (3216)
59. mál, afurðalán
Flm. (Hjalti Haraldsson):
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 4. þm. Norðurl. e. og 9. þm. Reykv. flutt svo hljóðandi till. til þál. á þskj. 78 um afurðalán:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um, að afurðalán verði veitt út á framleiðslu niðursoðinna og niðurlagðra sjávarafurða, flakaðs og heilfrysts kola og saltaðra grásleppuhrogna. Verði afurðalán þessi hlutfallslega jafnhá þeim afurðalánum, sem á hverjum tíma eru almennt veitt vegna framleiðslu frystihúsa og annarra framleiðslustöðva.“
Það munu vera nokkur ár síðan farið var að lána út á afurðir, bæði þær, sem búið var að semja um sölu á og svo þær, sem óseldar voru, en á þessu hefur þó verið nokkur tröppugangur, hvað snertir sumar framleiðsluvörur og svo mun hafa verið um þær framleiðsluvörur, sem taldar eru hér í till. En hér er um að ræða vörutegundir, sem eru í vaxandi mæli eftirsóttar. Nú er það yfirlýst stefna okkar, að við viljum bæta nýtingu þess sjófangs, sem að landi berst. Þess vegna hvílir á okkur sú skylda að styðja við þá þróun, sem þegar er vísir að, ekki hvað sízt þegar vinnsla þessara vara er veigamikill þáttur í atvinnulífi sumra smærri staða úti um land. Svo mun vera t.d. um grásleppuveiðarnar, sem mikið eru stundaðar í sjávarþorpum víða um land og einkum á þeim árstíma, þegar önnur atvinna hefur verið stopul, enda hefur slíkt orðið mörgu heimilinu gott búsílag. Sama gildir raunar um aðra þá framleiðslu, sem á er minnzt í till. Okkur ber þess vegna brýn nauðsyn til þess að efla þá framleiðslu, en það gerist því aðeins, að peningastofnanir í landinu sýni þeim fullan skilning. Nú er ekki með þessu verið að vanþakka það, sem þegar hefur verið gert í þessu sambandi. Það er langt frá því. Það hafa þegar verið veitt lán út á sumar þessar afurðir fram að þessu, en þó ekki nema vissan hluta. Ef við eigum að færa út kvíarnar og það hljótum við að ætla okkur að gera, hvað þessar framleiðslugreinar áhrærir, þá verða þær að fá að sitja við sama borð og aðrar hliðstæðar greinar sjávarútvegsins og eins og segir í grg. fyrir till. er hún flutt til þess að taka þar af öll tvímæli. Vænti ég þess, að hv. þm. taki þessu með skilningi og vinsemd. Þetta er að vísu ekki neitt stórmál, en það er þó áfangi í þróun, sem þarf að verða í uppbyggingu atvinnulífsins víða úti um land.
Herra forseti. Ég leyfi mér svo að leggja til, að umr. um till. verði frestað og málinu vísað til allshn.