09.04.1969
Sameinað þing: 39. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í D-deild Alþingistíðinda. (3885)

183. mál, útbreiðsla sjónvarps

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Hæstv. menntmrh. segir okkur nú, að þegar hann talaði um landshluta endur fyrir löngu, hafi hann átt við landsfjórðunga. Hvernig stóð þá á því, að hæstv. ráðh. nefndi ekki landsfjórðunga á þeirri tíð? Meðan heil héruð hafa ekki möguleika til að njóta sjónvarpsins, tel ég, að ekki hafi verið staðið við það fyrirheit að koma því til allra landshluta.