10.10.1968
Sameinað þing: 0. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. 3. kjördeild hefur haldið fund og athugað kjörbréf Sverris Hermannssonar viðskiptafræðings og ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið. Hún hefur þess vegna samþ. að leggja til við hv. Alþ., að kjörbréfið verði samþ. og kosningin tekin gild.