21.04.1969
Efri deild: 76. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

153. mál, eftirlaun forseta Íslands

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar um eftirlaun forseta Íslands, en um það efni hefur ekki verið sett löggjöf fram að þessu. Fjhn. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og eins og nál. á þskj. 479 ber með sér, mæla allir þeir nm., sem viðstaddir voru á þeim fundi, er afgreiddi málið, með því, að frv. verði samþ. óbreytt.