21.04.1969
Neðri deild: 79. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (823)

180. mál, stofnun og slit hjúskapar

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru nákvæmlega sömu rök fyrir þeirri breyt., sem felst í þessu frv. og m.a. giltu, þegar sú breyt. var gerð á l. um stofnun hjúskapar að miða við 20 ár, svo að manni sýnist eðlilegt, að það sama ætti einnig að gilda um stofnun og slit hjúskapar, og mælir allshn. með samþykkt frv.