25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (937)

16. mál, tilkynningarskylda íslenskra skipa

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Sjútvn. hv. d. hefur haft mál þetta til athugunar og kynnti sér m.a. þær aths., sem komu fram í hv. Ed. í sambandi við kostnað þann, sem yrði við tilkynningarnar. Eftir að hv. n. þessarar d. hafði kynnt sér málið, upplýstist, að Landssími Íslands hafði þegar lækkað þennan skeytakostnað um helming og þótt einstakir nm. hafi jafnvel verið óánægðir með að þessi kostnaður yrði lagður á útgerðina, voru nm. samt sem áður sammála um að mæla með samþykkt frv., eins og það er nú.