15.04.1969
Neðri deild: 77. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (950)

5. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Frv. þetta til l. um veitingu ríkisborgararéttar var undirbúið í dómsmrn. með venjulegum hætti og er komið hingað í þessa hv. d. frá Ed., og hefur þar verið fjallað um það samkv. þeim meginreglum, sem þingið hefur fylgt á undanförnum árum, nokkuð löngum tíma, um afgreiðslu og meðferð mála eins og þessa. Ég vil leyfa mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.