10.04.1969
Neðri deild: 74. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (973)
192. mál, Landsvirkjun
Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki tekið eftir hinni snöggu fundarstjórn hæstv. forseta, en eins og fram kemur á þskj. 416, hefur fjhn. þessarar hv. d. mælt með því, að frv. það, sem hér er á dagskrá, verði samþ. óbreytt. Einn nm., hv. 4. þm. Austf., var ekki viðstaddur afgreiðslu málsins.