10.10.1969
Sameinað þing: 0. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Þessir menn skipuðu þingið:

1. Auður Auðuns, 2. þm. Reykv.

2. Axel Jónsson, 4. þm. Reykn.

3. Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl.

4. Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl.

5. Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl.

6. Birgir Finnsson, 5. þm. Vestf.

7. Birgir Kjaran, 7. þm. Reykv.

8. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv.

9. Bjarni Guðbjörnsson, 3. þm. Vestf.

10. Bjartmar Guðmundsson, 11. landsk. þm.

11. Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl.

12. Björn Jónsson, 4. þm. Norðurl. e.

13. Björn Pálsson, 3. þm. Norðurl. v.

14. Bragi Sigurjónsson, 9. landsk. þm.

15. Eðvarð Sigurðsson, 2. landsk. þm.

16. Eggert G. Þorsteinsson, 8. þm. Reykv.

17. Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv.

18. Emil Jónsson, 3. þm. Reykn.

19. Eysteinn Jónsson, 1. þm. Austf.

20. Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl.

21. Geir Gunnarsson, 6. landsk. þm.

22. Gils Guðmundsson, 5. þm. Reykn.

23. Gísli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. e.

24. Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Sunnl.

25. Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v.

26. Gylfi Þ. Gíslason, 3. þm. Reykv.

27. Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl.

28. Hannibal Valdimarsson, 9. þm. Reykv.

29. Ingólfur Jónsson, 1. þm. Sunnl.

30. Ingvar Gíslason, 3. þm. Norðurl. e.

31. Jóhann Hafstein, 5. þm. Reykv.

32. Jón Árnason, 2. þm. Vesturl.

33. Jón Ármann Héðinsson, 5. landsk. þm.

34. Jón Kjartansson, 5. þm. Norðurl. v.

35. Jón Skaftason, 2. þm. Reykn.

36. Jón Þorsteinsson, 3. landsk. þm.

37. Jónas Árnason, 4. landsk. þm.

38. Jónas Pétursson, 3. þm. Austf.

39. Jónas G. Rafnar, 2. þm. Norðurl. e.

40. Karl Guðjónsson, 6. þm. Sunnl.

41. Lúðvík Jósefsson, 4. þm. Austf.

42. Magnús Jónsson, 6. þm. Norðurl. e.

43. Magnús Kjartansson, 6. þm. Reykv.

44. Matthías Bjarnason, 4. þm. Vestf.

45. Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn.

46. Ólafur Björnsson, 12. þm. Reykv.

47. Ólafur Jóhannesson, 1. þm. Norðurl. v.

48. Páll Þorsteinsson, 2. þm. Austf.

49. Pálmi Jónsson, 4. þm. Norðurl. v.

50. Pétur Sigurðsson, 10. þm. Reykv.

51. Sigurður Bjarnason, 2. þm. Vestf.

52. Sigurður Ingimundarson, 1. landsk. þm.

53. Sigurvin Einarsson, 1. þm. Vestf.

54. Stefán Valgeirsson, 5. þm. Norðurl. e.

55. Steingrímur Pálsson, 8. landsk. þm.

56. Steinþór Gestsson, 5. þm. Sunnl.

57. Sveinn Guðmundsson, 7. landsk. þm.

58. Sverrir Júlíusson, 10. landsk. þm.

59. Vilhjálmur Hjálmarsson, 5. þm. Austf.

60. Þórarinn Þórarinsson, 4. þm. Reykv.

Allir framantaldir þingmenn voru til þings komnir nema Axel Jónsson, 4. þm. Reykn., Björn Pálsson, 3. þm. Norðurl. v., og Jón Skaftason, 2. þm. Reykn.

Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom forseti Íslands, Kristján Eldjárn, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn): Hinn 24. sept. 1969 var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar föstudaginn 10. október 1969.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 24. september 1969. Kristján Eldjárn.

Bjarni Benediktsson. Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til fundar föstudaginn 10. október 1969.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég hef nú lesið, lýsi ég því yfir, að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég býð alla heila til þings komna. Ég óska þess, að heill og blessun megi fylgja störfum Alþingis. Ég bið yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.

[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi, þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Sigurvin Einarsson, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.

Forseti Íslands tók sér síðan sæti í þingsalnum, en aldursforseti Sigurvin Einarsson, 1. þm. Vestf., gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.