25.04.1970
Neðri deild: 82. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)

220. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Við 2. umr. málsins hér í hv. d. var bent á villu í brtt., sem meiri hl. fjhn. hafði flutt við þetta frv. Till. var tekin aftur við þá umr. og er nú prentuð upp aftur á þskj. 664 og nauðsynleg leiðrétting gerð.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meir um þá till. Ég gerði grein fyrir henni við 2. umr. málsins, en till. er flutt af meiri hl. fjhn.