29.04.1970
Neðri deild: 90. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

78. mál, skipan opinberra framkvæmda

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það er aðeins fsp. Í 7. gr. frv. stendur, að gerð skuli um opinbera framkvæmd rekstraráætlun, sem nær til minnst fimm ára, eftir að framkvæmd er lokið. Í þessu sambandi vil ég spyrja frsm. um það, hvort gert sé ráð fyrir því, að þetta frv., ef að lögum verður, taki til framkvæmda eins og þjóðvega og hafna.