29.04.1970
Neðri deild: 89. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

6. mál, skráning skipa

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur athugað þetta frv., eftir að það kom aftur til hv. d. frá Ed. N. er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. með svo hljóðandi breytingum:

„1. Við 3. gr. Í stað orðsins „skipamálastjóri“ í gr. og hvarvetna síðar í frv. komi í viðeigandi beygingarföllum: siglingamálastjóri.

2. Við 4. gr. Í stað orðsins „Skipamálastofnun“ í gr. og hvarvetna síðar í frv. komi í viðeigandi beygingarföllum: Siglingamálastofnun.“

Með þessari breyt. leggur sjútvn. til, að frv. verði samþ. Till. mun ekki enn hafa verið útbýtt prentaðri, og leyfi ég mér að leggja hana fram skriflega og bið hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.