20.11.1969
Efri deild: 16. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1611)
75. mál, framfærslulög
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Þegar þetta frv. var til 1. umr. hér í þessari hv. þd., þá vék ég nokkrum orðum að efni þess umfram það, sem í grg. stendur, en efni frv. er ofur einfalt. Ég sé því ekki ástæðu til þess að fara um frv. fleiri orðum nú við þessa umr., en eins og fram kemur í nál., þá hefur heilbr.- og félmn. athugað frv. og mælir einróma með því, að það verði samþ.