28.04.1970
Sameinað þing: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (2033)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Umr. fer þannig fram í kvöld, að hver flokkur fær til umráða 40 mínútur, er skiptast jafnt í tvær umferðir. Röð flokkanna í báðum umferðum verður þessi: Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur. Ræðumenn verða: fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna: í fyrri umferð Björn Jónsson, í síðari umferð Hannibal Valdimarsson, fyrir Sjálfstfl.: í fyrri umferð Bjarni Benediktsson, í síðari umferð Gunnar Gíslason og Matthías Á. Mathiesen, fyrir Framsfl.: í fyrri umferð Ólafur Jóhannesson, í síðari umferð Ágúst Þorvaldsson og Ingvar Gíslason, fyrir Alþb.: í fyrri umferð Lúðvík Jósefsson, í síðari umferð Gils Guðmundsson, fyrir Alþfl.: í fyrri umferð Gylfi Þ. Gíslason, í síðari umferð Jón Þorsteinsson.

Hefst nú umr., og tekur fyrstur til máls hv. þm. Björn Jónsson og talar af hálfu Samtaka frjálslyndra og vinstri manna.