27.10.1969
Sameinað þing: 7. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 24. okt. 1969.

Ólafur Jóhannesson, formaður þingflokks Framsfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl., mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur vegna meiðsla, leyfi ég mér, samkv. beiðni hans og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Helgi Bergs framkvstj., taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Helga Bergs verkfræðings liggur hér fyrir og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. [Fundarhlé.]