03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 3. des. 1969.

Jón Kjartansson, 1. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Magnús H. Gíslason bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Magnús H. Gíslason bóndi hefur áður átt sæti á Alþ. og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég býð hann velkominn til þingstarfa á ný.