08.12.1969
Sameinað þing: 20. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 5. des. 1969.
Gils Guðmundsson, 5. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að þar sem 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Karl Sigurbergsson skipstjóri, er erlendis, taki 2. varamaður Alþb., Sigurður Grétar Guðmundsson pípulagningameistari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jónas G. Rafnar,
forseti efri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Sigurður Grétar Guðmundsson hefur áður átt sæti á Alþ. og kjörbréf hans þá verið rannsakað. Hann tekur nú sæti á þinginu sem 5. þm. Reykn., og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa.
Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 5. des. 1969.
Ólafur Björnsson, 12. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Þorsteinn Gíslason skipstjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jónas G. Rafnar,
forseti efri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Þessu bréfi fylgir svo hljóðandi yfirlýsing:
„Að gefnu tilefni lýsi ég yfir því, að ég mun ekki geta tekið sæti á Alþingi í forföllum Ólafs Björnssonar, 12. þm. Reykv.
Reykjavík, 5. des. 1969.
Geir Hallgrímsson.“
Þorsteinn Gíslason skipstjóri hefur áður tekið sæti á Alþ. og kjörbréf hans þá verið rannsakað. Hann tekur nú sæti á þinginu sem 12. þm. Reykv., og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa.