16.03.1970
Efri deild: 56. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
forseti (JR):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Páli Þorsteinssyni, 2. þm. Austf.:
„Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austfjarðakjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Páll Þorsteinsson,
2. þm. Austf.
Til forseta efri deildar.“
Ég leyfi mér hér með að bjóða Tómas Árnason velkominn til starfa hér í hv. þd.