06.04.1970
Neðri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (MÁM):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Eysteinn Jónsson,

1. þm. Austf.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Tómasar Árnasonar hrl. hefur áður verið rannsakað og hann því áður tekið sæti á Alþ. Er hann boðinn velkominn.