24.04.1970
Sameinað þing: 47. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (2197)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 22. apríl 1970.

Sjútvrh., Eggert G. Þorsteinsson, 8. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Sigurður E. Guðmundsson skrifstofustjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Svo hljóðandi bréf liggur fyrir frá 1. varamanni Eggerts G. Þorsteinssonar:

„Reykjavík, 22. apríl 1970.

Ég undirrituð lýsi hér með yfir því, að ég vegna anna mun ekki geta tekið sæti á Alþingi í forföllum sjútvrh., Eggerts G. Þorsteinssonar, 8. þm. Reykv.

Jónína M. Guðjónsdóttir.

Til forseta efri deildar.“

Þar sem mættur varamaður, Sigurður E. Guðmundsson, hefur ekki átt sæti á Alþ. áður og kjörbréf hans því ekki verið rannsakað, þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfinu. Leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]