19.12.1969
Sameinað þing: 28. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)

Þinghlé

forseti (BF):

Komið er að því, að störfum Alþingis verði frestað um sinn vegna jólahátíðarinnar og áramótanna. Ég óska öllum hv. alþm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu. Ég þakka hv. alþm. samveruna og góða samvinnu á árinu, sem er senn á enda. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og ég óska þess, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing verður kvatt saman til funda á ný. Skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis óska ég einnig gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka þeim jafnframt vel unnin störf og ánægjulega samvinnu.