12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (2223)
Þinghlé
forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Hinn 31. des. 1969 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar 12. janúar 1970, kl. 14.00.
Gjört í Reykjavík, 31. desember 1969.
Kristján Eldjárn.
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf er kveður Alþingi til framhaldsfunda.“ Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis.
Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþ. gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.