27.04.1970
Efri deild: 80. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (2421)
54. mál, læknalög
Frsm. (Jón Þorsteinsson) :
Herra forseti. Á þessu þingi hafa komið fram ýmsar till. varðandi læknavandamál strjálbýlisins. Tvær till. hafa komið fram í Sþ., og svo liggur hér fyrir frv. til l. um breyt. á læknal. Þetta er þmfrv., sem flutt var í Nd., og aðalefni þessa frv. er að skylda læknakandídata til þess að gegna læknishéraði eða aðstoðarlæknisstörfum hjá héraðslækni allt að sex mánuði að námi loknu, eins og segir í 1. gr. frv., sem er breyt. við síðustu málsgr. 2. gr. læknal. nr. 80 frá 1969, en í þessu ákvæði læknal. er ráðh. heimilað að gera þennan sex mánaða starfstíma að skilyrði fyrir ótakmörkuðu lækningaleyfi, en samkvæmt frv. væri ráðh. þetta skylt.
Í meðferð Nd. breyttist þetta frv. nokkuð, og eins og frv. liggur nú fyrir, er reglan sú, að þeir eigi rétt á ótakmörkuðu lækningaleyfi og heita læknar, er lokið hafi prófi við læknadeild Háskóla Íslands, framhaldsnámi á sjúkrahúsi eftir reglum, sem læknadeild setur og ráðh. staðfestir. Þetta er allt óbreytt frá gildandi l., en síðan kemur viðbótin: „og hafa gegnt læknishéraði eða aðstoðarlæknisstörfum hjá héraðslækni sex mánuði að námi loknu, enda séu slík störf fyrir hendi.“ Þó er í vissum tilvikum unnt að gefa undanþágu frá þessu, þannig að í grundvallaratriðum hefur þetta frv. ekki breytzt við meðferðina í Nd.
Þessu frv. var að lokinni 1. umr. hér í Ed. vísað til heilbr.- og félmn. N. barst í hendur áskorun frá Félagi læknanema, sem ég með leyfi forseta vil lesa hér:
„Stjórn Félags læknanema lýsir yfir óánægju sinni vegna afgreiðslu Nd. á frv. um lengingu héraðsskyldu læknakandídata í sex mánuði. Læknanemar telja þessa aðferð til þess að koma heilbrigðisþjónustu dreifbýlisins í viðunandi form ranga og benda á eftirfarandi röksemdir máli sínu til stuðnings:
Flestir læknakandídatar og læknar, sem ráða sig til vinnu í héraði, eru þar í sex mánuði eða lengur, þannig að áður nefnt frv. mun síður en svo bæta úr núverandi ástandi. Ef svo skyldi fara, að þessi l. verði samþ., þá yrði það til að tefja enn frekar viðleitni til að samræma heilbrigðisþjónustu dreifbýlisins nútímakröfum um læknisþjónustu, þ. e. með stofnsetningu læknamiðstöðva.
Ætlunin með því að skylda læknakandídata til vinnu í héraði var í upphafi sú að veita þeim nauðsynlega þjálfun í almennum læknisstörfum. Nú er þriggja mánaða dvöl í héraði talin nægileg til þessa. Með samþ. ofangreindra l. á að gera tilraun til að leysa vandamál dreifbýlisins, hvað varðar læknisþjónustu, með því að skylda læknakandídata til sex mánaða dvalar í héraði. Frv. felur því í sér beina skerðingu á persónufrelsi læknakandídata. Er ekki vitað til þess að reynt sé að leysa önnur vandamál dreifbýlisins með því að lögskylda ákveðnar þjóðfélagsstéttir til að vinna utan þéttbýlis.
Stjórn Læknafélags Íslands hefur lagt fram ákveðnar till., sem stefna að því að leysa þessi vandamál í bráð. Telur stjórn Félags læknanema, að þær beri að kanna gaumgæfilega, áður en hlaupið er að samþ. ofangreinds lagafrv.
Í ljósi þess skorar stjórn Félags læknanema á þm. að afgreiða ekki áður nefnt frv. um lengingu héraðsskyldu læknakandídata sem lög frá Alþ.“
Einnig barst heilbr.- og félmn. bréf frá stjórn Læknafélags Íslands, sem er dags. 18. apríl s. l. og ég vil einnig með leyfi forseta lesa hér:
Stjórn Læknafélags Íslands hefur lagt fram ítreka fyrri ábendingar þess efnis, að lögfesting sex mánaða starfsskyldu læknakandídata í dreifbýli sem skilyrði þess, að þeir hljóti ótakmarkað lækningaleyfi, er til þess fallin að torvelda framtíðarlausn á vandkvæðum læknisþjónustu dreifbýlisins. Heimild til að beita slíkum aðgerðum er til í lögum og hefur verið notuð um langt árabil án árangurs, og vísast í því sambandi til grg. Læknafélags Íslands, sem send var heilbr.- og félmn. Nd. Alþ. og dagsett 10. des. 1969.
Á fundi, sem haldinn var með formönnum svæðafélaga Læknafélags Íslands 18. apríl s. l., kom einnig fram sú skoðun, að lögbinding sex mánaða skylduvinnu kandídata í héraði, mundi hafa óheillavænleg áhrif á lausn læknisþjónustuvandamálsins í dreifbýlinu. Á þessum fundi kom fram hugmynd um bráðabirgðalausn þessa vanda, sem byggist að verulegu leyti á þeirri grundvallarreglu að láta framabraut ungra lækna liggja gegnum dreifbýlið með þeim hætti, að tilteknar nýjar náms- og rannsóknarstöður við Landspítalann verði tengdar störfum í dreifbýli.
Með tilliti til þess, að læknamiðstöðvar eru langtímaframkvæmdir, og einnig með hliðsjón af því, að alþm. hafa óskað eftir því, að Læknafélag Íslands komi fram með till. um bráðabirgðalausn læknisþjónustuvandamálsins, þá samþykkti áður nefndur læknafundur að senda Alþ. hugmynd þessa í formi till. til þál. ásamt grg., sem fylgir hér með.
Stjórn Læknafélags Íslands væntir þess, að afgreiðslu frv. um sex mánaða þjónustuskyldu læknakandídata verði frestað, en beinir jafnframt þeim tilmælum til heilbr.- og félmn. Ed. Alþ., að meðfylgjandi till. til þál. verði lögð fram sem þskj. á þessu þingi.“
Eins og í þessu bréfi greinir, þá fylgdi með því till. til þál. um bráðabirgðalausn á þessu máli, ásamt grg., sem Læknafélagið óskar eftir, að verði borin fram á þessu þingi. Uppkast að till. hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að Landspítalinn taki upp víðtækari læknisþjónustu við dreifbýlið, en hingað til hefur verið. Í þessu skyni verði stofnaðar sérstakar stöður við ýmsar deildir Landspítalans, sem tengdar verði læknisþjónustu í dreifbýlinu.“
Með þessari till., sem Læknafélagið leggur fram, fylgir svo allýtarleg grg., og segir í henni m. a. svo:
„Hægt er að hugsa sér, að hinar nýju stöður við Landspítalann verði tengdar þjónustu við dreifbýlið með ýmsu móti:
1. Læknar fái tilteknar stöður eftir tiltekna þjónustu á dreifbýlissvæðum.
2. Læknar fái tilteknar námsstöður við Landspítalann gegn því að skuldbinda sig til þjónustu í vissum dreifbýlishéruðum tiltekinn tíma.
3. Læknar séu ráðnir í tilteknar rannsóknarstöður við Landspítalann og skuldbindi sig þá til að sinna aðkallandi þjónustu í dreifbýlinu, ef slíka nauðsyn ber að höndum skyndilega.
Með því móti ætti að takast að rjúfa hina faglegu einangrun litlu og afskekktu læknishéraðanna og koma að nokkru leyti á þeirri æskilegu tilhögun, að framabraut ungra lækna liggi um dreifbýlið.“
Heilbr.- og félmn. sá sér ekki fært svona á síðustu dögum þingsins að fara að beita sér fyrir því, að þessi till. yrði fram lögð sem þáltill., heldur valdi n. þá leið og varð um það sammála að gera till. um, að frv. þessu í heild verði vísað til ríkisstj. — En rétt er að geta þess, að skömmu eftir að heilbr.- og félmn. afgreiddi þetta frv. og tók afstöðu til þess, var afgr. í Sþ. þáltill. um endurskoðun læknaskipunarl. Ég vek athygli á því, að frv., sem hér um ræðir, er um breyt. á læknal., en þessi till. í Sþ. er um endurskoðun læknaskipunarl., sem nú hefur verið samþ., að vísu með breyt. frá því hún upphaflega var flutt, en þessi till., eins og hún var samþ., hljóðar þannig:
„Alþ. ályktar að fela heilbrmrh. að skipa nú þegar n. til að endurskoða ýmsa þætti heilbrigðislöggjafarinnar, sérstaklega um læknaskipan og sjúkrahús, með það fyrir augum, að komið verði á betri heilbrigðisþjónustu í landinu, m. a. með það fyrir augum, að læknar fáist til starfa í þeim héruðum, sem nú eru læknislaus. N. skal skipuð 5 mönnum: landlækni eða ráðuneytisstjóra heilbrmrn., er vera skal form. n., tveimur mönnum tilnefndum af Læknafélagi Íslands, og skulu þeir vera héraðslæknir og sjúkrahúslæknir; einum manni tilnefndum af læknadeild Háskóla Íslands og einum af Samb. ísl. sveitarfélaga. N. hefji þegar störf og skili sínum till. til úrbóta eigi síðar en 1. marz n. k.“
Þetta var sú till., sem samþ. var í Sþ.
Eins og áður segir, þá var niðurstaðan af athugun heilbr.- og félmn. Ed. á þessu frv., sem hér liggur fyrir um breyt. á læknal., sú, að leggja til, að frv. verði vísað til ríkisstj. og í niðurlagi nál. okkar segir:
„Heilbr.- og félmn. telur farsælast að reyna til þrautar að leysa þetta mál í samvinnu við læknastéttina, áður en til einhliða aðgerða er gripið. Í trausti þess, að heilbrigðisyfirvöld geri sitt ýtrasta í þessu efni, áður en Alþ. kemur saman að hausti, leggur n. til, að frv. verði vísað til ríkisstj.“