12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í D-deild Alþingistíðinda. (2991)
51. mál, kaup lausafjár með afborgunarkjörum
Jón Skaftason:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir skjóta og jákvæða afgreiðslu á þessu máli og bæta því einu við, að ég vænti þess, að af hálfu hæstv. ríkisstj. verði ekki á því dráttur að setja nefnd til þess að undirbúa frv. um kaup lausafjár með afborgunarskilmálum.
Eins og ég gat um, þegar ég mælti fyrir þessari þáltill., mun á Norðurlöndunum öllum, að því er ég bezt veit, vera í gildi löggjöf um þetta efni, sem fengizt hefur nokkurra ára reynsla af og — að því er ég þekki — mjög góð. Ég geri mér þess vegna vonir um, að frv. um þetta efni geti orðið tilbúið við upphaf næsta reglulegs þings.