22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í D-deild Alþingistíðinda. (3089)

86. mál, samvinna yfirstjórna fræðslumála og sjónvarps

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég kem í ræðustól aðeins til að lýsa þakklæti mínu til allshn. Sþ. fyrir málsmeðferðina á till., sem ég flutti á þskj. 96, og lýsi mig fyllilega samþykkan þessari breytingu, sem er hér að finna á þskj. 528. og ég vona, að hv. alþm. muni samþykkja hana nú á þessum fundi.